Stafræn klippikort
Klippikortið sem týnist aldrei.
Pappírsklippikort týnast í vösum og veskjum, og enginn man hvað margir stimplar eru komnir. Með stafrænu klippikorti frá Simveski er kortið í Apple Wallet eða Google Wallet í símanum og nýr stimpill birtist um leið og starfsfólk skannar það. Þegar kortið er fullt fær viðskiptavinurinn verðlaunin.
Svona virka stafræn klippikort
- 1
Hannaðu klippikortið
Settu inn merkið þitt, liti og texta. Þú sérð kortið nákvæmlega eins og það birtist í Apple Wallet og Google Wallet áður en það fer út.
- 2
Sendu hlekk
Í tölvupósti, með SMS eða sem prentaðan QR-kóða. Viðskiptavinurinn opnar hlekkinn og bætir kortinu í veskið í símanum með einum smelli. Ekkert smáforrit þarf.
- 3
Skannaðu við kassann
Starfsfólk skannar kóðann með hvaða síma sem er. Enginn sérstakur skanni og engin kassatenging.
- 4
Kortið uppfærist sjálft
Ný staða birtist í símanum hjá viðskiptavininum um leið, og þú sérð allar færslur í stjórnborðinu.
Af hverju stafrænt klippikort?
Alltaf í vasanum
Viðskiptavinurinn er alltaf með símann á sér, og þar með klippikortið. Engin gleymd kort heima.
Þú ræður reglunum
Veldu hve marga stimpla þarf og hver verðlaunin eru, til dæmis tíundi kaffibollinn frír eða fimmti tíminn ókeypis.
Ekkert svindl
Stimplar eru skráðir miðlægt þegar starfsfólk skannar kortið. Engir heimagerðir stimplar eða afrituð kort.
Sjáðu hverjir koma aftur
Tölfræðin sýnir hve mörg kort eru í notkun, hve margir stimplar eru gefnir og hve mörg verðlaun eru sótt.
Fyrir hverja?
- Kaffihús og bakarí
- Ísbúðir og skyndibitastaði
- Hárgreiðslu- og rakarastofur
- Bílaþvottastöðvar
- Líkamsrækt og námskeið
- Gæludýraverslanir og -þjónustu
Algengar spurningar
Fyrsta kortið þitt gæti verið komið í notkun strax í þessari viku.
Segðu okkur frá fyrirtækinu og við setjum upp aðganginn.
