Vildarkort og vildarkerfi
Vildarkerfi sem fastakúnnar nota í alvöru.
Stór vildarkerfi kosta mikið og krefjast þess að viðskiptavinir sæki enn eitt appið. Simveski gefur litlum og meðalstórum fyrirtækjum einfalt vildarkerfi í staðinn: vildarkort í Apple Wallet og Google Wallet sem safnar stimplum, og tilboð sem þú sendir fastakúnnum. Allt í símanum sem viðskiptavinurinn er þegar með.
Svona setur þú upp vildarkort
- 1
Hannaðu vildarkortið
Settu inn merkið þitt, liti og texta. Þú sérð kortið nákvæmlega eins og það birtist í Apple Wallet og Google Wallet áður en það fer út.
- 2
Sendu hlekk
Í tölvupósti, með SMS eða sem prentaðan QR-kóða. Viðskiptavinurinn opnar hlekkinn og bætir kortinu í veskið í símanum með einum smelli. Ekkert smáforrit þarf.
- 3
Skannaðu við kassann
Starfsfólk skannar kóðann með hvaða síma sem er. Enginn sérstakur skanni og engin kassatenging.
- 4
Kortið uppfærist sjálft
Ný staða birtist í símanum hjá viðskiptavininum um leið, og þú sérð allar færslur í stjórnborðinu.
Kostir vildarkorta í símanum
Ekkert app til að sækja
Flestir nenna ekki að sækja app fyrir eitt kaffihús. Kort í Apple Wallet eða Google Wallet tekur einn smell.
Verðlaun sem fá fólk til að koma aftur
Stimplar og verðlaun hvetja til endurkomu, og tilboð til fastakúnna gefa þeim ástæðu til að líta við.
Allt teymið með
Bjóddu starfsfólki með eigin innskráningu og hlutverk. Þau skanna og gefa stimpla, þú hefur yfirsýn.
Á íslensku og í krónum
Íslensk þjónusta, íslenskt viðmót og verð í krónum án binditíma. Byrjaðu smátt og stækkaðu þegar þú þarft.
Fyrir hverja?
- Kaffihús, bakarí og veitingastaði
- Verslanir með fastakúnna
- Hárgreiðslu-, snyrti- og nuddstofur
- Líkamsrækt og íþróttafélög
- Bílaþjónustu og þvottastöðvar
- Allar verslanir sem vilja fleiri endurkomur
Algengar spurningar
Fyrsta kortið þitt gæti verið komið í notkun strax í þessari viku.
Segðu okkur frá fyrirtækinu og við setjum upp aðganginn.
