Skilmálar
Síðast uppfært:
Þessir skilmálar gilda um notkun fyrirtækja á Simveski. Með því að stofna aðgang eða nota þjónustuna samþykkir þú þá fyrir hönd fyrirtækisins sem þú kemur fram fyrir.
Þjónustan
Simveski gerir fyrirtækjum kleift að hanna, gefa út og halda utan um stafræn kort í Apple Wallet og Google Wallet, svo sem gjafabréf, klippikort, inneignarmiða og aðgangsmiða.
Aðgangur
Þú berð ábyrgð á að upplýsingar um fyrirtækið séu réttar, að lykilorð séu varðveitt og á allri notkun sem fer fram í gegnum aðgang fyrirtækisins, þar með talið starfsfólks sem þú bætir við.
Áskrift og greiðslur
Þjónustan er seld í mánaðaráskrift samkvæmt verðskrá á vefnum. Verð eru án virðisaukaskatts, sem bætist við reikninga. Áskrift endurnýjast mánaðarlega þar til henni er sagt upp og uppsögn tekur gildi í lok yfirstandandi mánaðar. Greidd gjöld eru ekki endurgreidd fyrir hluta úr mánuði.
Við getum breytt verðskrá með minnst 30 daga fyrirvara. Ef greiðsla berst ekki getum við lokað fyrir útgáfu nýrra korta þar til hún hefur borist; kort sem þegar hafa verið gefin út halda áfram að virka.
Ábyrgð fyrirtækisins á kortum
Fyrirtækið sem gefur út kort er útgefandi þess og ber eitt ábyrgð gagnvart handhafa. Það á við um að standa við inneign, afslætti og fríðindi, um skilmála kortanna, gildistíma og endurgreiðslur, og um að fara að lögum, t.d. um neytendavernd og persónuvernd. Simveski er tæknilegur þjónustuaðili og tekur ekki við greiðslum frá handhöfum korta né ber ábyrgð á verðmæti þeirra.
Efni og ásættanleg notkun
Fyrirtækið heldur öllum réttindum að merkjum, myndum og texta sem það setur inn og veitir okkur heimild til að nota það efni eingöngu til að veita þjónustuna. Óheimilt er að nota þjónustuna:
- fyrir ólöglega starfsemi eða villandi kort,
- með efni sem brýtur gegn réttindum annarra,
- til að senda óumbeðin skilaboð,
- til að reyna að komast í gögn annarra fyrirtækja eða raska þjónustunni.
Kort þurfa einnig að fara að reglum Apple og Google um Wallet.
Persónuupplýsingar
Varðandi upplýsingar um handhafa korta er fyrirtækið ábyrgðaraðili og Simveski vinnsluaðili. Við vinnum þær aðeins til að veita þjónustuna og samkvæmt fyrirmælum fyrirtækisins, gætum trúnaðar og öryggis, notum aðeins þá undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í persónuverndarstefnunni og aðstoðum fyrirtækið við að svara beiðnum skráðra einstaklinga. Nánar er fjallað um vinnsluna í persónuverndarstefnunni.
Apple og Google
Kortin birtast í Apple Wallet og Google Wallet, sem eru þjónustur þriðju aðila. Við berum ekki ábyrgð á breytingum, takmörkunum eða truflunum á þeirra þjónustu sem kunna að hafa áhrif á hvernig kort birtast eða uppfærast.
Aðgengi og breytingar á þjónustunni
Við leggjum okkur fram um að þjónustan sé ávallt aðgengileg en getum ekki ábyrgst að hún verði aldrei fyrir truflunum. Við kunnum að bæta við, breyta eða fjarlægja eiginleika; verulegar breytingar sem skerða þjónustuna tilkynnum við með fyrirvara.
Takmörkun ábyrgðar
Þjónustan er veitt eins og hún er. Að því marki sem lög leyfa berum við ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem tapaðri sölu eða hagnaði. Heildarábyrgð okkar takmarkast við þau gjöld sem fyrirtækið greiddi síðustu 12 mánuði áður en tjónið varð.
Uppsögn
Fyrirtæki getur sagt upp hvenær sem er. Við getum lokað aðgangi vegna verulegra brota á skilmálunum eða vanskila. Eftir uppsögn hefur fyrirtækið 30 daga til að sækja gögn sín, t.d. færslusögu úr mælaborðinu eða afrit frá okkur; að því loknu er þeim eytt samkvæmt persónuverndarstefnunni. Kort í símum handhafa hætta þá að uppfærast.
Breytingar á skilmálum
Við kunnum að breyta skilmálunum. Verulegar breytingar tilkynnum við í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara og áframhaldandi notkun eftir það telst samþykki.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Ágreining skal reyna að leysa í sátt en annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Netfang: hello@simveski.is
